Jæja þá er mæling númer tvö búin og þessi vigt sem er þar er greinilega ekki sammála minni þannig að ég nota bara tölurnar úr mælingunum framvegis. En allt er samt á niðurleið og mest fóru cm af mér núna og ég finn það alveg. Annars er þetta dagur númer tvö á Reductil og þetta er mjög skrítið, ég hugsa ekki nærri því eins mikið um mat og verð ekki nærri því eins mikið og oft svöng. Reyndar þarf ég að borða reglulega en núna fæ ég mér bara smá og smá.
Verður gaman að sjá hvernig árangurinn verður eftir kannski tvær vikur.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Til hamingju með frábæran árangur. Ekki einblína á viktina, sentimetrarnir fara fyrst og þeir eru mjög mikilvægir. Alltaf gott að fá víðari föt ;)
Takk :) Já það er mjög skemmtilegt þegar fötin fara að verða víð og ennþá skemmtilegra þegar "markmiðsfötin" fara að passa manni :)
Skrifa ummæli