Ég þarf greinilega að fara að blogga hérna aðeins, er búin að vera að létta á mér í umræðu á barnalandi...spurning um að yfirfæra þetta bara allt hingað og meira til..
Þetta er umræðan og ég er doram
http://www.barnaland.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=5689279&advtype=52#m5696038
En alla vega langt síðan síðasta blogg var. Ég er búin að vera í smá krísu með sjálfa mig, finn alveg að ég er komin á tímapunkt sem ég hef verið á áður og yfirleitt bara gefist upp. Núna hefur þyngdin staðið í stað og mér finnst það erfitt og þá byrja ég að borða. Er búin að vera aðeins og eftirgefanleg við mig upp á síðkastið, en núna skal ég gjöra svo vel að komast í sama gír og ég hef verið í! Ég finn alveg að mig vantar svona aðhald eins og ég var í fyrir áramót, finn að mig vantar meiri utanaðkomandi stuðning. Maðurinn minn styður mig auðvitað ég er að tala um mælingar og æfingar, að finna þessa "keppnis-ég skal" tilfinngu aftur sem ég fann þegar ég var í aðhaldinu fyrir áramót. Ég ætla að byrja hjá einkaþjálfaranum í febrúar, veit bara ekki hvern ég að velja (Guðrún ef þú lest þetta máttu alveg gefa mér hint - u know what I mean ;) )
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

3 ummæli:
Gaman að hitta á fleiri bloggara sem eru í svipaðri stöðu og maður sjálfur - tala nú ekki um þegar þeim gengur svona vel eins og þér :D
Er sjálf að byrja á ddv í næsta mánuði og nú er það G.Æ.S.in :)
Gangi þér vel
p.s. langaði að bæta við að mér finnst þessir tvær "mælar" mjög sniðug hugmynd hjá þér - var að spá í að fá hana lánaða? :)
Takk fyrir Ásta og endilega fáðu hugmyndina mína lánaða og gangi þér rosalega vel!
Kveðja,
Dóra
Skrifa ummæli