miðvikudagur, 14. febrúar 2007

Ég fór til einkaþjálfarans í gær, var að lyfta og tók síðan 8 mínútur á hjólinu eftir það. Mér líður bara vel í dag, finn alveg að ég hafi reynt á mig í gær en ég er engar harðsperrur með, enda var ég látin teygja vel. Svo var ég með tvær vinkonur mínar í smá saumaklúbbi í gærkvöldi, það var nú mest hollusta á borðum með pínu óhollustu en ég hef góða samvisku þótt ég viðurkenni alveg að ég hafi fengið mér smá óhollustu líka.

Ég fer aftur á fimmtudaginn í einkaþjálfun en ég veit ekki hvort ég geti farið í þessar 35 mín í brennslu þessa vikuna þar sem maðurinnn minn fór út á sjó í gær og kemur ekki fyrr en á mánudagsmorgun aftur, en þá bæti ég það bara upp í næstu viku og fer oftar þá. Ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta skemmtilegt og þetta er góð tilfinning, að vita að maður er að hreyfa sig markvisst :). Ég verð bara að passa mig að borða oftar yfir daginn, allt í einu er klukkan bara orðin 18 og ég kannski bara búin að fá mér eitthvað tvisvar eða þrisvar yfir daginn. Svo er ég alltaf með vatnsbrúsann hjá mér núna, drekk alveg tvo til þrjá þannig brúsa á dag og brúsinn tekur 750ml af vatni.

Jæja ég læt þetta duga núna :)

Kveðja,
Dóra

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, hreyfing hefur ótrúlega góð áhrif. Mér líður aldrei betur en þegar ég er að hreyfa mig. þarf einmitt að fara að koma hreyfingunni inn aftur hjá mér!