fimmtudagur, 8. febrúar 2007

Ég fer í kvöld í fyrsta tímann hjá einkaþjálfaranum, sú heitir Sigga og er í Perlunni. Ég talaði við hana í gærkvöldi og það var að losna eitt pláss hjá henni. Hún ætlar að taka stikkprufu á mér, athuga styrkinn minn og mæla mig hátt og lágt og auðvitað ræða saman um væntingar og slíkt. Æi hvað ég er ánægð að vera að byrja á þessu og vonandi fer nú vigtin að fara niður aftur, ekki bara standa í stað á sömu fjandans tölunni!

Af einhverjum ástæðum eru teljararnir mínir úti, laga það kannski í kvöld.

Kv. Dóra

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel hjá þjálfaranum. Ekki gefast upp þó að talan standi í stað, það er mjög algengt. Talan fer niðurávið núna er þú byrjar hjá einkaþjálfaranum ;)