laugardagur, 16. desember 2006

Ég sem vinn aldrei neitt vann í gærkvöldi þetta prógram hjá Akademíunni! Vann dekur á snyrtistofu :) Alla vega þá eru lokatölurnar í þessu prógrammi komnar, ég held auðvitað áfram og vigta mig og ég á fitumæli, þannig að ég get fitumælt mig líka. En það sem ég mun sakna er ummálsmælingin...

En ég ákvað í gærmorgun að prófa buxur sem ég gat ekki komið utan um mig í september og ég prófaði aftur í síðasta mánuði og það vantaði ennþá upp svolítið að ég gat hneppt. En í gærmorgun kom ég þeim utan um og var ég í þeim allan daginn í gær! Líður bara ofsalega vel núna :)

Kveðja,
Dóra

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er alltaf svo ótrúlega góð tilfinning að komast í föt sem voru orðin of lítil :)

Kisubolla sagði...

ohh já segðu! Alveg yndislegt!

Nafnlaus sagði...

Frábær árangur hjá þér!!! Til lukku með þetta! Vissi sko alveg að þú gætir þetta. Endilega verðlauna sig smá. Gangi þér rosa vel um jólin, veit það getur verið erfitt en þú ert búin að standa þig svo vel hingað til að þú getur þetta alveg. Ætli ég þekki þig nokkuð er ég sé þig næst ;)