laugardagur, 18. nóvember 2006

Jæja þar sem ég veit hver munurinn á vigtunum eru, veit ég réttu þyngdina mína þó ég vigti mig hérna heima. Ég vigtaði mig núna áðan í fötum en engum skóm auðvitað og þá hafði vigtin varið niður um 400 grömm síðan á miðvikudaginn þannig að ég vildi setja uppfærða teljara :)

Hérna er stóri teljarinn


Hérna er minni teljarinn


Annars er þetta mest allt matarræðinu að þakka, ég hef ekki mikið geta farið út að hreyfa mig vegna veikinda hjá Jóhönnu Örnu og svo hef ég verið svo slæm í bólgum á löppunum að ég á bara erfitt með það stundum. En ég hugsa að eftir áramót fari ég inn á einhverja líkamsræktarstöð.

Jæja læt þetta duga núna

Kveðja,
Dóra

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Glæsilegt, haltu áfram á sömu braut :)

Kisubolla sagði...

Takk fyrir :) Þegar allt er á niðurleið, virkar þetta sem hvati á mann :)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með frábærann árangur, þú getur þetta sko alveg :)